Íslandsbærinn

Íslandsbærinn var reistur árið 1997
og stendur við Blómaskálann Vín. Bærinn var byggður í stíl hefðbundinna
íslenskra höfuðbóla með fjórum þiljum og torfhleðslu hið ytra. Innandyra er
veislusalur í borðstofustíl og gestastofa.
Íslandsbærinn tekur 70 manns í sæti
og er kjörinn vettvangur fyrir veislur og hvers konar mannfagnaði, fundi,
ráðstefnur og námskeið. Forn umgjörð skapar einstaka stemmningu og í boði
eru þjóðlegar veitingar, sé þess óskað.